Eyjabakki 2

109 Reykjavík

Ásett verð: 64.500.000 kr.

Eyjabakki 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
105,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1969
Fermetraverð
609.065 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu EYJABAKKI 2, 109 Reykjavík . Falleg fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi, auk þvottahús/geymslu innan íbúðar. Í kjallara er ein sérgeymsla og sameiginleg geymsla með sérmerktu rými ásamt sameiginlegu þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Húsið er klætt að utan og lóð snyrtileg. Tilvalin fjölskyldueign!

Eignin er skráð alls 105,9 fm. samkvæmt HMS . , byggt árið 1969.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:

Forstofa : Glerveggur á milli forstofu og borðstofu, parket á gólfi.

Stofa / borðstofa : Björt og rúmgóð með stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt er á góðar suðursvalir.

Eldhús : Góð eldhúsinnrétting með eldavél, borðkrókur, parket a gólfi og flísar á milli efri og neðri skápa.

Hjónaherbergi : Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp sem nær upp í loft, dúkur á gólfi.

Herbergi 2 : Dúkur á gólfi, fataskápur á gangi framan við herbergi.

Herbergi 3 : Dúkur á gólfi.

Baðherbergi : Góð innrétting, baðkar með sturtu, flísar á veggjum og gólfi.

Þvottahús/geymsla : Inn af eldhúsi - tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi, dúkur á gólfi.

Svalir : Góðar suðursvalir með útgengi frá stofu.

Sérgeymsla : Í kjallara, stærð 4,4 fm. Stærð á sameiginlegri geymslu er 13 fm. og er með sérmerktu rými.

Þurrkherbergi : Sameiginlegt, í kjallara.

Hjóla- og vagnageymsla : Sameiginlegt, í kjallara.

Nýlegar endurbætur :

2025: Fóðrun skólplagna í húsinu.

Gólfteppi á stigagangi hefur verið endurnýjað.

2020: Skipt hefur verið um hurðir í þremur herbergjum og baðherbergi.

Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og skólar í næsta göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veita:

Anton Y. Sakornram , aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is

Kristján Baldursson , hdl. og löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is

Bóka verðmat

[link]

Trausti á Facebook