Smiðjustígur 13

845 Flúðir

Ásett verð: 67.900.000 kr.

Smiðjustígur 13
Tegund
Raðhús
Stærð
96,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
702.899 kr.

Lýsing

Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, og Hús fasteignasala. kynna í einkasölu eignina Smiðjustígur 13, 845 Flúðir.

Smiðjustígur 13C er fallegt og vel skipulagt 96,6 fm timbur raðhús á góðum stað á Flúðum byggt árið 2020.

Eignin skiptist í bjarta og rúmgóða stofu og eldhús í opnu rými, þrjú góð svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi, forstofu og þvottahús.

Í eldhúsi er góð vinnuaðstaða og gott skápapláss. Stofan er rúmgóð og með útgengi út á góðan pall sem býður upp á notalega útiveru.

Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru öll með fataskápum.

Baðherbergið er snyrtilegt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofn, snyrtilegri innréttingu og veggir eru klæddir með Fibo-plötum og flísar á gólfi.

Forstofan er rúmgóð með góðum fataskáp.

Þvottahúsið er sér með flísum á gólfi.

Á gólfum er harðparket, en flísar eru á baðherbergi og í þvottahúsi.

Geymsluskúr í garði.

Fyrir framan húsið er steypt innkeyrsla með snjóbræðslukerfi (hita).

Um er að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.