Dugguvogur 6
104 Reykjavík
Ásett verð: 83.400.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 106,9 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2020
- Fermetraverð
- 780.168 kr.
Lýsing
Rúmgóð og björt 3ja herbergja endaíbúð í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi byggt af ÞG verk auk sér bílastæðis í lokuðum og upphituðum bílakjallara við Dugguvog í Reykjavík. Rúmgóðar svalir til vesturs. Einstaklega rúmgóð stofa og borðstofa. Baðherbergi með glugga. Lagt er fyrir rafmagnshleðslustöð í bílakjallara. Húsið að utan er klætt að utan og því viðhaldslítið. Gluggar eru ál/timbur gluggar.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 106,9fm. og þar af er geymsla 10,6fm. Bílastæði íbúðar er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 85.500.000 kr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa stór og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni, komin er heimild til að byggja yfir svalirnar.
Eldhús er opið við stofu. Falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp með fyrsti, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir, eyja sem hægt er að stija við með mjög góðu borðplássi og parket á gólfi.
Gangur með parketi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtileg innrétting, opnanlegur gluggi, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkari, vinnuborð og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins rúmgóð og með mikilli lofthæð.
Sér bílasstæði í lokaðri bílageymslu og búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð.
Í sameign er sameiginlegar hjólageymslur og er sameign öll mjög snyrtileg.
Annað:
Dimmera á flestum ljósum í íbúðinni.
Sólarhrindandi rúllugluggatjöld eru fyrir öllum gluggum í íbúðinni og myrkvunargluggatjöld í hjónaherbergi.
Búið er að greiða fyirr undirbúningsvinnu við svalalokanir, s.s. vinnu arkitekts og skiplagsgjöld. Kaupandi ákveður svo hvort hann vill svalalokun eða ekki, en greiða þarf sérstaklega fyrir þá framkvæm
Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum stéttum, sameiginlegum fallegum garði til suðurs með veröndum, stígum og lýsingu.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og mjög miðsvæðis.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is