Sóltún 7

311 Borgarnes

Ásett verð: 57.900.000 kr.

Sóltún 7
Tegund
Parhús
Stærð
136,200000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Fermetraverð
425.110 kr.

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Sóltún 7, Hvanneyri, 311 Borgarbyggð.

Um er að ræða 4 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr. Húsið er byggt úr timbri árið 2005 og er 136.2 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er sambyggður bílskúr 27,7 fm.

Gengið er í forstofu. Þar innaf er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Úr alrými er gengið í 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Gengt er úr stofu og bílskúr út á lóðina.

Nánari lýsing:

Forstofa flísar á gólfi og fataskápur.

Stofa flísar á gólfi og gengt út á baklóð

Eldhús flísar á gólfi, innrétting með helluborði, bakarofni og stæði fyrir uppþvottavél. Eldhúsinnréttingin er komin til ára sinna og farin að láta á sjá,

Svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápar. Stór fataskápur í hjónaherbergi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Fibo Trespo á hluta veggja. Baðkar og innrétting.

Þvottahús er með flísum á gólfi, vaski og lítilli innréttingu. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr.

Bílskúr er með steyptu gólfi og góðri bílskúrshurð.

Bílaplan er malarborið og grasflöt á lóðinni.

Á Hvanneyri er bæði skóli og leikskóli. Stutt í alla aðra þjónustu í Borgarnesi.

Eignin er komin til ára sinna og þarfnast viðhalds / endurnýjunar. Seljandi bendir því væntanlegum kaupendum á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að þeir leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Seljandi mun ekki gera neinar endurbætur né þrif á henni fyrir sölu.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.