Vatnsstígur 15
101 Reykjavík
Ásett verð: 147.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 135,3 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 2004
- Fermetraverð
- 1.090.170 kr.
Lýsing
Hilmar Arnarson, löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:
Glæsilega fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð að Vatnsstíg 15 í Skuggahverfinu í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin einkennist af tímalausri hönnun og sérsmíðuðum innréttingum, ásamt aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Tvennar svalir eru á íbúðinni, annars vegar til austurs og hins vegar til vesturs. Eigninni fylgir einnig rúmgott bílastæði í bílageymslu hússins.
Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, opið alrými, stofa/setustofa og borðstofa, eldhús og 2 baðherbergi ásamt þvottahúsi.
Árið 2016 var farið í miklar endurbætur en HAF Studio sá um hönnun. Sérsmíðaðar innréttingar, marmaraborðplötur og vönduð eldhústæki frá Miele. Fallegt flæðandi eikarparket er á alrými og svefnherbergjum. Rúmgott baðherbergi er innaf hjónaherbergi.
Eignin er skráð 135,3 fm samkvæmt fasteignaskrá. Henni tilheyra 10,5 fm sérgeymsla í kjallara og rúmgott stæði í bílageymslu hússins.
** Nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson Lgf. í síma 823-3673 eða á netfanginu hilmar@remax.is. **
Nánari lýsing eignarinnar
Forstofa: Sérsmíðaðir og innbyggðir, hvítir fataskápar sem ná upp í loft. Dúkur á gólfi.
Alrými : Rúmgott og bjart alrými sem samanstendur af borðstofu, setustofu og sjónvarpsrými í opnu flæði við eldhús. Aukin lofthæð og stórir, gólfsíðir gluggar skapa bjart samverurými. Eikarparket á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar vestursvalir með sjávarútsýni milli húsa.
Eldhús: Stílhreint, U-laga eldhús opið við borðstofu/stofu, með sérsmíðaðri hvítri innréttingu. Tveir rúmgóðir búrskápar, útdraganlegar skúffur og mikið skápapláss. Hvítur marmari er á borðum og undirlímdur stálvaskur. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Vönduð eldhústæki eru frá Miele.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi, sérbaðherbergi og útgengi á austursvalir. Eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Inn af hjónaherbergi er baðherbergi með flísum á gólfi og rúmgóðri, flísalagðri sturtu með glerþili. Hvítur innbyggður skápur, upphengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi 2 : Rúmgott herbergi með gólfsíðum glugga og eikarparketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp og útgengi á austursvalir. Eikarparket á gólfi.
Þvottahús og gestasnyrting: Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur, speglaskápur og upphengt salerni. Dúkur á gólfi.
Gestabaðherbergi : Flísalögð rúmgóð sturta.
Sérgeymsla : Í kjallara er 10,5 fm sérgeymsla með mikilli lofthæð.
Bílageymsla : Íbúðinni fylgir rúmgott stæði í vandaðri bílageymslu í kjallara hússins, þar sem einnig er þvottaaðstaða.
Sameign og aðkoma: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. Við húsið eru hellulagt bílaplan og upphitaðar stéttar ásamt grænu fallegu litlu leiksvæði.
Húsvörður starfar í byggingunni og Eignaumsjón annast rekstur húsfélagsins.
Húsið er lyftuhús sem inniheldur 15 íbúðir á 10 hæðum, auk kjallara á tveimur hæðum.
Vatnstígur 15 er vandað fjölbýlishús í hinu eftirsótta Skuggahverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, kaffihús, veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu ásamt iðandi mannlífi í miðborginni.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali hilmar@remax.is sími 823-3673 .
Remax fasteignasala sími 477-7777 . [link]
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.