Stapavellir 10

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 66.900.000 kr.

Stapavellir 10
Tegund
Raðhús
Stærð
93,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
712.460 kr.

Lýsing

Rúmgott og bjart tveggja herbergja endaraðhús á einni hæð við Stapavelli 10 í Njarðvík. Sér þvottahús er innan eignarinnar. Útgengt er út í bakgarð hússins úr baðherbergi og þvottahúsi. Útgengt er út á verönd úr borðstofunni/stofunni. Frábær staðsetning þar sem stutt er í verslun og flesta þjónustu. Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 93,9fm.

Nánari lýsing:

Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð. Frá rýminu er útgengt á verönd á framhlið hússins með steyptum skjólveggjum.

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting, upphengt salerni og sturta. Frá baðherbergi er útgengt út í bakgarð hússins.

Þvottahús með góðri innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og flísar á gólfi. Útgengt er út í bakgarð hússins úr þvottahúsinu.

Geymsla með flísum á gólfi.

Lóð er frágengin, bílaplan og stétt er hellulögð með snjóbræðslu. Steyptir skjólveggir fyrir framan og aftan húsið.

Allar nánari upplýsingar veita Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is