Straumhella 11D bil104

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 38.900.000 kr.

Straumhella 11D bil104
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
76,4 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
509.162 kr.

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Nýtt og vandað 76,4 m² iðnaðarbil í steyptu húsi við Straumhellu 11D í Hafnarfirði. Tilbúið til afhendingar í nóvember 2026 eða við undirritun kaupsamnings.

Nákvæmar upplýsingar um skil og hvaða einingar eru óseldar má sjá með því að skoða heimasíðu verkefnisins: Smelltu hér

- Húsið er steypueiningahús frá Einingaverksmiðjunni. Burðarvirki sökkla, útveggja (útveggir eru gerðir úr samlokueiningum, með einangrun í miðju eininga) og innveggja er úr steypueiningum. Burðarvirki þaks er úr steyptum holplötum. Ofaná steyptar holplötur kemur einangrun og tvöfalt lag af tjörupappa.

- Hverri einingu fylgir sérafnotaréttur fyrir framan hverja einingu sem nemur breidd hverjar einingar.

- Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð samkvæmt teikningu og síðan kemur girðing ásamt aðgangsstýrðu öryggishliði.

- Bilið er 76,4 m² og með vegghæð frá 6,1 m. upp í 6,78 m. Mögulegt að gera mjög góð milliloft innan rýmisins.

- Afhending er áætluð í nóvember 2026.

- Tvær inngönguhurðir og ein innkeyrsluhurð í hverju bili. Innkeyrsluhurðir eru 3 m. x 3 m. að stærð.

- Við hlið þessa bils er annað jafnstórt bil til sölu.

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars:

​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.