Tröllakór 9-11

203 Kópavogur

Ásett verð: 112.500.000 kr.

Tröllakór 9-11
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
162,6 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
691.882 kr.

Lýsing

Jason Kristinn sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynnir fallega og bjarta fimm herbergja 162,6 fm fjölskylduíbúð á 4. hæð við Tröllakór 9-11, 203 Kópavogi (merkt 04-06, fastanúmer 228-7861), ásamt stæði í bílageymslu og öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.

Húsið stendur við lokaða botnlangagötu þar sem umferð er í lágmarki.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa/gangur: Flísalagt rými sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.

Stofa og borðstofa: Sérlega björt og rúmgóð með flísum á gólfi. Útgengi er á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.

Eldhús: Rúmgott og bjart með vönduðum steinborðplötum og góðu plássi fyrir borðstofu. Flísar á gólfi.

Svefnherbergi: Svefnherbergin eru alls fjögur, öll parketlögð og með fataskápum. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott og þrjú góð barnaherbergi eru á bilinu 9–13 fm.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með gólfhita. Bæði baðkar og sturta.

Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi innan íbúðar, flísalagt og með gólfhita.

Sérgeymsla: skráð 11,9 fermetrar og íbúðin er því skráð: 150,7 fermetrar.

Bílastæði: Sér merkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Á teikningu er stæðið merkt B21.

Staðsetningin er einstaklega fjölskylduvæn, stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði og verslun, auk þess sem ósnortin náttúran og fallegar gönguleiðir eru rétt við bæjardyrnar. Fallegt útsýni er til suðurs frá eigninni.

Eigendur skoða skipti á minni íbúð.

Nánari upplýsingar veitir:

Jason Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 775-1515 eða á jason@betristofan.is