Holtsvegur 13

210 Garðabær

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Holtsvegur 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
83,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Fermetraverð
836.124 kr.

Lýsing

Stór verönd - Stæði í bílageymslu - Sólstofa

Valhöll kynnir fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið 2018 á Holtsvegi 13 í Urriðaholtinu í Garðabæ. Stæði í upphitaðri bílageymslu fylgir með. Lyfta er í húsinu. Stór verönd með skjólgirðingu. Björt sólstofa með gólfsíðum gluggum. Góð geymsla við hlið íbúðar. ÞG verk byggði húsið.

Eignin er skráð 83,6 fm á stærð skiptist í 74,9 fm íbúð og 8,7 fm geymslu.

Þetta er rúmgóð og skemmtileg íbúð sem er vert að skoða.

Smelltu hér til að sjá myndband af íbúðinni.

Nánari lýsing:

Anddyri: með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi: með "walk in" sturtu, innréttingu, innréttingu undir vaski og speglaskápum fyrir ofan vask, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi.

Svefnherbergi: mjög rúmgótt með fataskápum og parketi á gólfi.

Eldhús: í opnu alrými með ljósri innréttingu með fínu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp og parketi á gólfi.

Stofa / borðstofa: í opnu alrými með eldhúsi með parketi á gólfi.

Sólstofa: innaf stofu með gólfsíðum gluggum í tvær áttir, flísum á gólfi og útgengi á stóra timburvernd með skjólgirðingu.

Eldhús: með hvítri innréttingu, góðu borð- og skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og parketi á gólfi.

Geymsla: 8,7 fm sérgeymsla á sömu hæð og íbúð.

Bílastæði: sérbílastæði í upphituðum bílakjallara.

Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg á sömu hæð og íbúð.

Hússjóður:

Í dag er þessi íbúð að greiða 26.030 kr. á mánuði í hússjóð.

Nánari upplýsingar veita:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.