Brekkugerði 17

108 Reykjavík

Ásett verð: 199.000.000 kr.

Brekkugerði 17
Tegund
Einbýlishús
Stærð
331,000000762939 m²
Herbergi
9
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
1964
Fermetraverð
601.208 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 331 fm. einbýlishús á tveimur hæðum innst í botnlanga. Stórkostlegt útsýni er frá þaksvölum og koníakstofu á þaki. Möguleiki er á aukaíbúð með sérinngangi á neðri hæðinni. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.

***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með graníti á gólfi og stórum skápum. Inn af forstofunni er setustofa með graníti á gólfi og stórum gluggum.

Svefnherbergi með parketi á gólfi. Geymsla og inn af því er fatageymsla. Gangur með flísum á gólfi.

Herbergi tvískípt með parketi á gólfi. Annað herbergi með parketi og lausum skápum.

Baðherbergið er flísalagt, með sturtuaðstöðu og innréttingu.

Af ganginum er forstofa með flísum á gólfi og sérinngangi þar sem gengið er út í garð bakdyramegin.

Þvottahús með dúk á gólfi og glugga, sem áður var eldhús.

Úr setustofu er stigi upp á efri hæð. Uppi er sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.

Baðherbergi er endurnýjað með glugga, flísum á gólfi, innréttingu með granítborði, upphengdu salerni og skápum.

Hjónasvíta með parketi og flísum á gólfi, fataherbergi og baðherbergi með sturtu og baði. Svalir til austurs.

Björt stofa með flísum og parketi á gólfi, stórum gluggum og lýsingu í lofti. Út frá stofu eru rúmgóðar vestursvalir. Úr stofunni er opinn stigi upp í koníakstofu með parketi. Þar eru gluggar með stórbotnu útsýni til allra átta.

Borðstofa með parketi á gólfi og innbyggðum skáp.

Endurnýjað eldhús með flísum á gólfi, gluggum og stórri fallegri hvítri innréttingu með tveimur innbyggðum kæli- og frystiskápum.

Innbyggður bílskúr (32,7 fm) er á jarðhæð með flísum.

Frábær staðsetning í 108 Reykjavík. Stutt er í skóla á öllum stígum og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:

Kjartan Hallgeirsson s. 824 9093 löggiltur fasteignasali, kjartan@eignamidlun.is

Unnar Kjartansson s. 867 0968 löggiltur fasteignasali, unnar@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook