Karlsbraut 12
620 Dalvík
Ásett verð: 48.500.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 168,49999961853 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1943
- Fermetraverð
- 287.834 kr.
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Karlsbraut 12 - 5-6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og stakstæður bílskúr á Dalvík - stærð 168,5 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti
Efri hæð: Forstofa/viðbygging, gangur, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvær samliggjandi stofur.
Neðri hæð: Bakinngangur, gangur, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Forstofa/viðbygging var byggð við húsið fyrir um 5 árum og var þá byggt yfir steyptar tröppur á norðurhlið hússins. Þar er lakkað gólf og gluggar til þriggja átta. Aðstaða er fyrir stóla svo hægt er að sitja og njóta kvöldsólarinnar. Úr forstofu er gengið inn á gang með parketi á gólfi. Annar inngangur er inn á neðri hæðina.
Eldhús , upprunaleg hvít máluð innrétting og parket á gólfum. Ágætur borðkrókur. Úr eldhúsi liggur steyptur stigi niður á neðri hæðina.
Tvær samliggjandi stofur eru á efri hæðinni með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru fjögur , eitt á efri hæðinni með dökku parketi á gólfi. Á neðri hæðinni eru þrjú herbergi, öll með dúk á gólfi.
Baðherbergin eru tvö , eitt á hvorri hæð. Á efri hæðinni er upprunalegt baðherbergi með dúk á gólfi, hvítri innréttingu og skápum, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Á neðri hæðinni eru flísar á gólfi og þiljur á veggjum, hvít innrétting, wc og sturtuklefi.
Þvottahús er á neðri hæðinni og þar er lakkað gólf, hvít innrétting, bekkur með vask og opnanlegur gluggi.
Bílskúr er stakstæður og skráður 28,4 m² að stærð. Gólf er steypt og án gólfefna. Sér gönguhurð á langhliðinni og nýleg innkeyrsluhurð á framhliðinni. Búið er að endurnýja glugga. Bílskúrinn er kynntur með affalli af íbúðarhúsi. Steypt stétt er fyrir framan bílskúrinn.
Annað
- Falleg og gróin lóð.
- Ekki er full lofthæð á neðri hæðinni.
- Ofnar eru á innveggjum.
- Þak er gamalt og þarfnast skoðunar.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.