Ljósheimar 2

104 Reykjavík

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Ljósheimar 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
96,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1965
Fermetraverð
776.166 kr.

Lýsing

RE/MAX og Oddur Fasteignasali kynna í einkasölu:

Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á 1. hæð við Ljósheima 2 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 96,5fm þar af geymsla 4,1fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu í sameign. Á jarðhæð er sérgeymsla, hjóla og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Grétarsson löggiltur fasteignasali, s: 782-9282 eða á oddur@remax.is.

Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.is

Nánari lýsing:

Forstofa: gengið er inn í forstofugang með parketi á gólfi.

Eldhús: er vel skipulagt með parketi á gólfi, gott skápa- og borðpláss. Tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur í eldhúsi.

Stofa og borðstofa: eru í sameiginlegu björtu rými með parketi á gólfi og útgengi á svalir sem snúa í suð-vestur.

Hjónaherbergi: er rúmgott með góðum fataskáp með rennihurðum. Parket á gólfi.

Svefnherbergi: parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, sturta, handklæðaofn og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi á baði.

Eignin er frábærlega staðsett, stutt í alla þjónustu í Skeifunni og útivistarparadísina í Laugardalnum. Húsið hefur fengið gott viðhald og inni var sett nýtt parket 2019, ofnar hafa verið endurnýjaðir, skipt var um gler í flestum gluggum íbúðarinnar 2021.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk