Hlíð 2

765 Djúpivogur

Ásett verð: 33.700.000 kr.

Hlíð 2
Tegund
Einbýlishús
Stærð
93,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1954
Fermetraverð
360.814 kr.

Lýsing

Sérlega vel staðsett einbýlishús með frábæru útsýni, fallegum garði og þremur svefnherbergjum.

Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi. Eldhús er við hlið stofu og opið (gengt) þar á milli þó að veggur aðskilji rýmin að mestu. Í eldhúsi er fín innrétting, borðkrókur og dúkur á gólfi. Baðherbergi er flísalagt. Þar er sturta og flísapanill á veggjum. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, öll með dúk á gólfi. Í þvottahúsi er málað gólf og þaðan er útgengt. Inn af þvottahúsi er búr/geymsla. Háaloft er yfir öllu húsinu.

Fallegt gamalt hús sem vel hefur verið haldið við þó að eitthvað sé farið að láta á sjá og þarfnist viðhalds eins og gengur og gerist.