Geislagata 10 íbúð 302
600 Akureyri

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 73,4 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1925
Lýsing
Geislagata 10 íbúð 302 - Mikið uppgerð 3-4ra herbergja risíbúð í fjölbýli í miðbæ Akureyrar - stærð 73,4 m²
***Íbúðin er í dag í skammtímaleigu og býður eignin upp á góða tekjumöguleika vegna staðsetningar í miðbæ Akureyrar***
***Mögulegt er að kaupa innbú með***
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem er innréttuð sem svefnherbergi.
Forstofa og gangur eru með harðparketi á gólfi og þreföldum skáp.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og dökkri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og ofn í vinnuhæð. Yfir borðkrók er opnanlegur þakgluggi.
Stofa er með harðparketi á gólfi og hurð út á suður svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð, með parketi á gólfi og ljósum fataskápum.
Geymsla er innréttuð sem þriðja svefnherbergið í dag. Þar er harðparket á gólfi og opnanlegur þakgluggi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu undir vaski, upphengdu wc, walk-in sturtu með glervængjum. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. Tengi er fyrir þvottavél og opnanlegur þakgluggi.
Á jarðhæðinni undir stigapalli er geymsla (merkt 102) sem er í sameign með íbúðum á 2. og 3ju hæð hússins.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, þar má nefna nýleg eldhúsinnrétting og tæki, baðherbergi nýlegt, fataskápar endurnýjaðir sem og innihurðar og gólfefni
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.