Laugarvegur 35

580 Siglufjörður

Ásett verð: 39.000.000 kr.

Laugarvegur 35
Stærð
128,5 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1954
Fermetraverð
303.502 kr.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Laugarvegur 35, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0677 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Laugarvegur 35 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0677, birt stærð 128.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða sérhæð með háalofti með miklum möguleikum. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búr, borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi með þvottaaðstöðu og háaloft sem býður upp á marga möguleika. Sérbílastæði fylgir eigninni. Húsið hefur verið klætt að utan og einangrað.

Forstofa: er með flísum á gólfi og ágætis fatahengi. Stigagangur er upp á efri hæð úr anddyri.

Eldhús: hefur verið endurnýjað að hluta með viðarlitaðri innréttingu og góðum borðkrók.

Borðstofa: er með parket á gólfi og frábæru útsýni yfir fjörðinn.

Búr: er inn af eldhúsi með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga.

Stofa: liggur samhliða með borðstofu með parket á gólfi og góðu gluggaplássi.

Svefnherbergi: eru í heildina 3. Tvö eru á neðri hæðinni og eitt á háaloftinu.

Baðherbergi: er með flísalögðum sturtuklefa, innréttingu, vask og salerni. Flísar eru á gólfi. Þvottaaðstaða er á baðherbergi.

Háaloft: er hrátt en hefur verið hólfað niður að hluta í geymslu og svefnherbergi. Þakgluggi er á háalofti og gólf er steypt.