Fossvegur 2

800 Selfoss

Ásett verð: 53.800.000 kr.

Fossvegur 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
95 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
566.316 kr.

Lýsing

Björt og rúmgóð þriggja herbergja endaíbúð í fallegu hverfi á Selfossi Flott útsýni af 9,3 fm suðvestursvölum með útsýni til fjalla.

Tvö tengi til hleðslu á rafmagnsbílum á bílastæði.

Gott skipulag og góð staðsetning nálægt leikskóla og miðbæ Selfoss .

Snyrtileg og vel viðhaldin eign í fjölskylduvænu hverfi.

Birt stærð samkvæmt HMS: 95,0 m²

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. 7754000 / palli@palssonfasteignasala.is

Andrea Ósk Harradóttir Lgf. 785-6698 andrea@palssonfasteignasala.is

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa er rúmgóð með glugga, fataskáp og flísum á gólfi.

Gangur er með síðum glugga í enda og leiðir inn í önnur rými íbúðarinnar.

Herbergi eru tvö bæði rúmgóð með skápum.

Baðherbergi/þvottaherbergi er rúmgott með opnanlegum glugga, vaski í góðri innréttingu, sturtuklefa, hornbaðkari, handklæðaofni og þvottaaðstöðu fyrir þvottavél og þurkara. Flísar á gólfi.

Gluggalaust herbergi/geymsla innan íbúðar er rúmgóð með hillum.

Eldhús er með viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og vaski við glugga.

Stofa/borðstofa er opin við eldhús sem skapar sérlega góða birtu í rúmgóðu alrýminu (þar sem um endaíbúð er að ræða). þar er gengið út á suðvestur svalir með útsýni til fjalla.

Innréttingar , innihurðar og gólfefni. Fataskápar, eldhúsinnrétting og baðinnrétting eru úr dökkum sléttum sambærilegum við. Innihurðar dökkar yfirfelldar viðarhurðar. Parket á herbergisgólfum, gangi og stofu, flísar á öðrum gólfum.

Sameign er snyrtileg, björt með lyftu. sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Inn í lyftugang er handfrjáls opnunarbúnaður og myndavélakerfi við dyrasýma.

Hús er klætt að utan með stálklæðningu og viðhaldslétt.

Ath: Allar myndir í söluyfirlitinu hafa verið unnar með gervigreind til að sýna mögulega nýtingu og útfærslu rýma.

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteign, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.