Móabarð 2

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Móabarð 2
Stærð
93,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1954
Fermetraverð
693.376 kr.

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð við Móabarð 2, 220 Hafnarfjörður. Eignin er samtals 93,6 fm, þar af er íbúðin 70,9 fm og bílskúr 22,7 fm. Eignin skiptist í f orstofu, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi, bílskúr, sameiginlegt þvottahús, garður.

Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is .

Helstu kostir:

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

22,7 fm bílskúr.

Rúmgóð stofa með stórum gluggum.

Sérinngangur og aðgengi að útisvæði og garði.

Gróið íbúðahverfi í Hafnarfirði.

Nánari lýsing:

Forstofa: Forstofa með flísum á gólfi.

Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi og stórum gluggum.

Eldhús: Eldhús með hvítri innréttingu, viðarlitaðri borðplötu og glugga yfir vaski. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi : Rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og stórum glugga.

Baðherbergi: Baðherbergi með dökkum flísum á hluta veggja og gólfi, vegghengdu salerni, handlaug með innréttingu og sturtu. Handklæðaofn og gluggi eru á baðherberginu.

Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með flísum á gólfi, glugga og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílskúr: Eigninni tilheyrir 22,7 fm bílskúr.

Útisvæði: Útgengt er úr forstofu á hellulagt útisvæði og þaðan út í garð.

Staðsetning:

Móabarð 2 er í grónu íbúðahverfi í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu.

Viðhald:

2017-2018 var að sögn eignanda eftirfarandi gert:

Hita og neysluvatnslagnir endurnýjaðar og sameiginlegum hita skipt upp í sér hita fyrir sitthvora íbúð.

Skólp endurnýjað innan íbúðar og cirka 1m út fyrir útvegg.

Vatnsveitan setti nýtt kaldavatns inntak fyrir húsið.

Rafmagnstöflu sem var fyrir báðar íbúðir var skipt í tvær töflur fyrir sitthvora íbúð og tekið inn þriggja fasa rafmagn.

Raflagnir endurnýjaðar í íbúð og dregið þriggja fasa rafmagn í bílskúr og þar sett upp rafmagnstafla.

Lagt rafmagnsrör fyrir hleðslustöð eða lýsingu.

Nýjar hita og neysluvatnslagnir lagðar í bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is .

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.

Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.