Raftahlíð 48

550 Sauðárkrókur

Ásett verð: 93.000.000 kr.

Raftahlíð 48
Tegund
Raðhús
Stærð
233,200000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Byggingarár
1981
Fermetraverð
398.799 kr.

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 48, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum og hlutdeild í sameign.

Vel skipulagt og mikið endurnýjað sjö herbergja endaraðhús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr 233,2 fm.

Íbúðin er 208,5 fm. og bílskúrinn 24,7 fm. Húsið var byggt árið 1981.

Leigulóð hússins er alls 376 fm.

***Seljandi er tilbúinn að skoða skipti á minni eign***

Fasteignin skiptist í fimm herbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, tvær forstofur, þvottahús, gluggalaust herbergi og bílskúr.

Á efri hæð er forstofa, eldhús, stofa, baðherbergi, svefnherbergi og bílskúr .

Komið er í flísalagða forstofu þar sem er fataskápur. Útidyrahurð hefur verið endurnýjuð.

Stofa og eldhús er í sama rými og parketlagt. Gluggar í stofu snúa í vestur.

Eldhús er parketlagt, innrétting er frá Trésmiðjunni Borg, tveir bakaraofnar og annar líka örbylgjuofn, span helluborð og innbyggð uppþvottavél.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, walk in sturtu, góðum skápum og handklæðaofni. Hiti í gólfi. Baðherbergi var endurnýjað 2016.

Svefnherbergi er rúmgott. Parket á gólfi og mikið skápapláss. Hurð út á svalir frá herberginu.

Í holi er parket á gólfi. Við stiga er opið rými þar sem áður var herbergi. Stigi til neðri hæðar er teppalagður.

Frá holi er innangengt í bílskúr sem er flísalagður og með rafdrifinni bílskúrshurð. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð.

Á neðri hæð eru fjögur herbergi, eitt stórt gluggalaust herbergi, baðherbergi, rúmgott þvottahús og forstofa með hurð út í garð .

Herbergi hæðarinnar eru öll parketlögð fyrir utan eitt sem er flísalagt og með gólfhita. Fataskápar eru í tveimur þeirra.

Stórt flísalagt herbergi með gólfhita en herbergi er nýtt sem leikherbergi. Herbergið er gluggalaust.

Gangur er parketlagður.

Þvottahús er stórt , þar er tengi er fyrir tvær þvottavélar og þurrkara. Gólf er málað og þar er lagnagrind hússins. Þvottahús er gluggalaust.

Baðherbergi er dúklagt, sturta, vaskur og salerni.

Flísalögð forstofa er á hæðinni með hurð út á sólpall í garði. Hiti í gólfi.

Í garði er um 70 fm. afgirtur sólpallur með heitum potti . Lýsing er í skjólveggjum. Gras er á hluta garðs.

Bílaplan er steypt og með snjóbræðslu. Hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir.

Fasteignin hefur verið mikið endurnýjuð og vel við haldið.

Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar frá stút og út í brunn og settur nýr brunnur.

Lagnagrind hefur verið endurnýjuð.

Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð og komið þriggja fasa rafmagn.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is

Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali

Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala