Aðalstræti 37

450 Patreksfjörður

Ásett verð: 59.500.000 kr.

Aðalstræti 37
Tegund
Einbýlishús
Stærð
228,9 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
2
Byggingarár
1957
Fermetraverð
259.939 kr.

Lýsing

Virkilega sjarmerandi einbýlishús á 3 hæðum með AUKAÍBÚÐ á Patreksfirði

* Aukaíbúð og góðar leigutekjur

* 7-8 svefnherbergi

* 2 Baðherbergi á efri hæð hússins (annað er óklárað)

* Óskert útsýni út á fjörð

* Mikið endurnýjað hús

* Allar frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar

Mögulega er hægt að fá húsgögnin keypt með.

Gengið er upp steyptar tröppur inn á aðal hæð hússins sem er 2. hæð.

Þegar að inn er komið er þar;

1-2 svefnherbergi (annað er nýtt sem sjónvarpsrými í dag)

Stór stofa- Opið, rúmgott og bjart Eldhús

WC með sturtu

Stórt búr / þvottahús með útgengt út á lóð.

Timbur stigi er upp á 3. hæð , þar eru 4 svefnherbergi -

Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með 2 gluggum sem vísa út á fjörð ásamt innbyggðum skáp.

3 Barnaherbergi ásamt sjónvarpsholi.

Klósettrými (fokhelt)

Geymsla er á hæðinni, mætti einnig nýta sem skrifstofu.

Gólfefni eru harðparket, flísar og gólffjalir.

Á jarðhæð / 1. hæð hússins er búið að útbúa SÉR ÍBÚÐ sem búið er að taka í gegn frá A til Ö. Íbúðin er í leigu.

Gengið er inn í stórt sameiginlegt eldhús og stofu með útsýni út á fjörð. Eldhúsið er snyrtilegt með eyju

Selerni með upphengdu salerni, sturtu, vask og tengi er fyrir þvottavél & þurkara á baði.

2 svefnherbergi eru í íbúðinni.

Sjónvarpshol er innst á svefngangi.

Gólf eru flotuð og búið er að klæða hluta af veggjum og lofti með panil.

Nánari útlisting á því sem búið er að framkvæma við húsið.

1 hæð: Öll jarðhæðin var endurnýjuð árið 2019 frá A til Ö.

Nýtt rafmagn dregið í allt og ný stór tafla sett upp fyrir allt húsið.

Allar vatnslagnir endurnýjaðar og nýjir ofnar í öllum rýmum.

Hitagrind fyrir húsið endurnýjuð og uppfærð.

Panell í lofti endurnýjað, gólfin voru flotuð, slípuð og lökkuð.

2 svefnherbergi voru útbúin.

Sjónvarpskrókur

Stórt sameiginlegt eldhús/stofurými

Nýtt eldhús og allt nýtt á baðherbergi.

2. hæð: Sagað út og settir nýir gluggar í austur út á pallinn eins og sjá má á myndum. Útsýni inn fjörðinn úr eldhúsinu.

Svalahurð var sett þar sem áður var gluggi, nú er því útgengt út á pall.

Ný uppþvottavél í eldhúsi.

Stofa, auka stofa (eða herbergi), svefnherbergi, stórt búr og WC og eldhús.

3. hæð: Búið að rífa plastparket að hluta og pússa og mála orginal gólfborð (sjá myndir).

Búið að leggja panil í herbergi og að hluta á gang (sjá myndir).

Það er til panill á amk allan ganginn og fulningahurðar í þau rými sem eftir á að skipta um hurðar. Það á að vera til lakk á panilinn og lakk á restina af gólfborðunum ef það er áhugi fyrir því að klára að gera upp í sama stíl.

4 svefnherbergi eru á efri hæðinni , geymsla og óklárað salerni með aðgengi út á þak. Gluggi á salerninu var síkkaður og tvö sett af opnanleg fögum sem hægt er að opna alveg út á þakið.

Búið að draga nýtt rafmagn í endurbætta hlutann.

Nýir ofnar í 3 svefnherbergjum og á gang.

Ytra byrði: Búið er að endurnýja ALLA - Austur hlið hússins og hluti Norðurhliðar: Skipt um fúin borð í klæðningu, allan pappa, fótstykki. Nýjir íslenski sérsmíðaðir gluggar frá Valda á Þingeyri með upprunalega laginu. Bárujárnsklætt og sérsmíðuð gerefti í kring um alla glugga frá Hvolsvelli.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald sl árin og eigendur lögðu mikinn metnað í að halda í gamla stíl hússins.

Þetta er Einstakt hús á frábærum stað á Patreksfirði.