Eskihlíð 16

105 Reykjavík

Ásett verð: 86.900.000 kr.

Eskihlíð 16
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
119,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
729.639 kr.

Lýsing

Valný fasteignasala og Kristín María Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:

Eskihlíð 16, 105 Reykjavík:

Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með auka herbergi í risi með útleigumöguleika. Eignin skiptist í rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi, tvær stórar stofur með útgengi á svalir, endurnýjað fallegt eldhús og baðherbergi. Í kjallara er góð geymsla og í risi er herbergi með aðgengi að snyrtingu sem hægt er að leigja út eða nýta sem vinnuherbergi. Gegnheilt parket er á allri íbúðinni fyrir utan eldhús, bað og hol en þar eru steinflísar. Fallegt útsýni er á alla vegu úr eigninni. Eignin er vel staðsett í nálægð við skóla, leikskóla, alla helstu þjónustu og gott útivistarsvæði.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Smelltu hér til að bóka skoðun.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 119.1 m² , þar af er íbúðarrými 102,4 m² , herbergi í risi 9,2 m² sem merkt er geymsla og sérgeymsla í kjallara hússins 7,5 m². Eign merkt 04-01 , fastanúmer 203-0336 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fatahengi.

Eldhús er endurnýjað með flísum á gólfi, ofni í vinnuhæð og góðu skápa- og vinnuplássi.

Stofa og borðstofa eru með gegnheilu parketi á gólfi, mjög rúmgóðar og útgengi á svalir. Auðvelt er að breyta annarri stofunni í herbergi.

Hjónaherbergi er stórt með gegnheilu parketi á gólfi og miklu skápaplássi.

Herbergi í risi með parketi á gólfi og aðgengi að sameiginlegri snyrtingu.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og lítilli innréttingu.

Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins, mjög snyrtilegt.

Geymsla er rúmgóð í kjallara hússins.

Næg bílastæði eru fyrir utan húsið og tvær sameiginlegar hleðslustöðvar.

Framkvæmdir að sögn seljanda:

2026 Nýtt rafmagn dregið í geymslu í kjallara.

2025 Nýjar innihurðir og karmar málaðir og skipt um þéttilista.

2024 Breytingar á ofnalögn, nýir lofthitastýrðir ofnakranar.

2024 Íbúð máluð (fyrir utan baðherbergi).

2022-2023 Eldhúsinnrétting endurnýjuð og veggflísar. Ný tæki (fyrir utan uppþvottavél 2018) og vaskur. Kítti í sturtu endurnýjað.

2018-2020 Skipt um salernisskál og sturtu- og blöndunartæki á baðherbergi.

2014 Nýir karmar í hurðargöt settir upp í stofu og skipt um gerefti (sérsmíðað í upprunalegu útliti).

2013 Brunahurð sett í herbergi í risi.

Hér er um að ræða einstaklega góða og fallega eign sem er bæði rúmgóð og björt og státar af glæsilegu útsýni yfir hafið og borgina. Hún býður upp á mikla möguleika, þ. á m. útleigumöguleika. Eignin er í nálægð við mikla útivistarparadís í Öskjuhlíð og nágrenni. Þá eru bæði skólar og helsta þjónustu örstutt frá.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Kristín María Gunnarsdóttir / Löggiltur fasteignasali / 659-6075 / kristin@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér .

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat .

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | [link] | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00