Lambastaðabraut 6

170 Seltjarnarnes

Ásett verð: 219.500.000 kr.

Lambastaðabraut 6
Tegund
Einbýlishús
Stærð
245,4 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1940
Fermetraverð
894.458 kr.

Lýsing

Frábærlega staðsett einbýli með sjávarútsýni á 864 fm eignarlóð. Húsið er skv. FMR 245,4 fm en skv. deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðar 0,4 eða sem samsvarar 345,6 fm byggingu. Stórbrotið útsýni til sjávar og víðar. Reisulegt tvílyft timburhús á steyptum kjallara. Góð forstofa á jarðhæð. Á fyrstu hæð er gestasnyrting, rúmgott herbergi, eldhús með góðum eldhúskrók og stór stofa með frábæru útsýni. Þaðan er útgengt á svalir með stiga niður í garð þar sem er skemmtilegur afgirtur timburpallur. Á eftri hæð er stórt hjónaherbergi með minna herbergi inn af sem td. mætti nota sem fataherbergi. Þar eru önnur tvö samliggjandi herbergi og einnig mjög rúmgott baðherbergi bæði með baðkeri og sturtuklefa, Í kjallara er stórt þvottahús, með sturtu, geymslur, snyrting og tvö samliggjandi herbergi.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is

Sólstofa 8,4 fm að innanmáli sem sýnd er á samþykktum teikningum er ekki til staðar og því má ætla að húsið sé um 10 fm minna en FMR segir til um. Þá hafa 2,3 fm svalir sem samþykktar teikningar sýna á rishæð ekki verið byggðar.

Gengið er inn í rúmgóða forstofu á vesturhlið hússins. Þaðan liggur stigi hálfa hæð upp á fyrstu hæðina. Þar eru sunnanmegin stórar samlggingjandi stofur og borðstofa, með stórbrotnu útsýni til suðurs, til sjávar að Keili og víðar. Eldhúsið er á austurhluta hæðarinnar, það er með góðu borðplássi og hlýlegum eldhúskrók.

Rúmgott herbergi er á hæðinni sem nýtist td. sem svefnherbergi, sjónvarpsherbergi eða skrifstofa. Skemmtilegir útskotsgluggar eru bæði í eldhúsi og herbergi.

Á 2. hæð hússins eru samtals 4 herbergi sem bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og margir súðarfermetrar auka enn á nýtinguna. Baðherbergið er sérlega rúmgott. Á suðurhlið hæðarinnar er stórbrotið sjávarútsýni, en á norðurhliðinni er fallegt útsýni að Esjunni og víðar.

Hálfa hæð niður frá forstofunni er kjallarinn. Þar er mjög rúmgott þvottahús með stóru vinnuborði og ræstivaski og jafnframt með sturtu. Þar er einföld snyrting með glugga, tvö samliggjandi herbergi á suðurhliðinni, gangur og geymsla.

Frábærlega staðsett reisulegt útsýnishús á eignarlóð á þessum vinsæla stað Seltjarnarnesi. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is