Vegghamrar 3

112 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Vegghamrar 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1988
Fermetraverð
763.100 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð með sérinngangi í Vegghömrum 3, Grafarvogi, á vinsælum stað þaðan sem stutt er í skola og leikskóla og alla þjónustu. Íbúðin er á jarðhæð og með skjólgóðum palli fyrir aftan. Íbúðin er skrá 91,6 fm hjá HMS. Allar nánari upplýsingar veita Hallgrimur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er inn í snyrtilega og bjarta forstofu með svörtum flísum á gólfi og fatahengi.

Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og svörtum flísum á milli skápa, parket á gólfi

Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar og útgengt er út á stóra og skjólgóða verönd frá stofunni.

Svefnherbergi hjóna er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi

Barnaherbergi er rúmgott og með parketi á gólfi.

Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítum flísum á gólfi og einum vegg og tengi fyrir þvottavél.

Möguleiki er að bæta við einu herbergi ef það þarf.

Fjölbýlið er vel staðsett í barnvænu og vinsælu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í skólann og í lítinn verslunarkjarna í Foldahverfi.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrimur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is