Svöluás 1

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Svöluás 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
84,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2002
Fermetraverð
827.219 kr.

Lýsing

Atli á Lind kynnir í einkasölu þessa björtu og vel skipulögðu 3ja herbergja íbúð við Svöluás 1A í Hafnarfirði. Sér inngangur er af svölum í íbúðina sem er á annarri hæð og bíður upp á fallegt útsýni yfir Esjuna, Akrafjallið, Snæfellsnes og Snæfellsjökull úr stofunni og af svölum.

Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 84.5 fm (þar af 5,1 fm geymsla)

Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 64.700.000 kr.

Bókið skoðun og fyrir nánari upplýsingar:

Atli Karl - Löggildur fasteignasali / 662 4252 / atli@fastlind.is

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgengi á svalir, baðherbergi, hjónaherbergi, svefnherbergi ll, þvottahús og sér geymslu í sameign.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.

Stofa og borðstofu í björtu og opnu alrými með parketi á gólfi og útgengi út á norðursvalir.

Eldhús með viðarlitaðri innréttingu, vínylflísum á gólfi og flísum á milli skápa og borðplötu.

Hjónaherbergi er með góðum fataskáp og parketi á gólfi (12,7 fm).

Svefnherbergi ll er með parketi á gólfi (9,6 fm).

Baðherbergi er með hvítri innréttingu, baðkari og ljósum flísum á gólfi og veggjum.

Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi, vaskaaðstöðu og auka geymslu inn af.

Sérgeymsla (5,1 fm) er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Svöluás er vel staðsett hús í Hafnarfirði en í hverfinu eru tveir leikskólar, Tjarnarás og Stekkjarás og einn grunnskóli, Áslandsskóli. Fyrir þá sem hafa áhuga á hestum þá er Hestamannafélagið Sörli stutt frá og fyrir þá sem hafa áhuga á golfi þá er Urriðavöllur og Setbergsvöllur einnig stutt frá. Í Hafnarfirði er einnig hægt að nálgast helstu þjónustu og verslanir.

Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Svöluás 1, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 225-4262 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Atli Karl Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 6624252, tölvupóstur atli@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð .