Suðurvellir 4

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 97.500.000 kr.

Suðurvellir 4
Tegund
Einbýlishús
Stærð
180,399999237061 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1978
Fermetraverð
540.466 kr.

Lýsing

Allt fasteignasala kynnir í einkasölu, Suðurvelli 4, 230 Reykjanesbæ. Rúmgott einbýlishús með 4 svefnherbergjum, mögulegt er að bæta við 5. svefnherberginu í sjónvarpsholi. Einnig er fullbúin útleiguíbúð í hluta af bílskúr, 15 fm geymsluskúr er í lóð og góður sólpallur. Tvö salerni eru í húsinu og þriðja er í bílskúrsíbúð. Eignin er í rólegu hverfi í enda botlanga með fallegu náttúruútsýni. Húsið er skv FMR skráð 180,4 fm þar af er bílskúr skráður 44,8. Fremst í bílskúr er góð geymsla. Virkilega spennandi eign á vinsælum stað í Heiðarskólahverfi.

Skoðunarbókanir og nánari upplýsingar veitir:

Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í s: 772-7930 eða á halla@allt.is

Forstofa er flísalögð og þar er góður klæðaskápur

Gestasalerni er inn af forstofu, þar er vaskur, eldri vaskinnrétting og klósett.

Hol og gangur er parketlagt

Eldhús hefur parket á gólfi, þar er hvít innrétting með viðar köntum og nýlegum borðplötum, eldavél og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, fallegt náttúruútsýni er frá eldhúsi.

Þvottahús er inn af eldhúsi, nokkuð rúmgott, þar er innrétting og búr með hillum á veggjum, hurð er frá þvottahúsi út á lóð

Stofa er parketlögð og hurð er út á afgirta sólpall frá stofu

Sjónvarpsstofa er samliggjandi stofu og borðstofu, þar væri hægt að bæta við 5. svefnherberginu.

Baðherbergi hefur fiboplötur á gólfi og veggjum, þar er hvít innrétting, baðkar og stór sturta. Hiti er í gólfi á baðherbergi

4 svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi, í þeim er parket á gólfi og góðir klæðaskápar eru í hjónaherbergi.

Bílskúr er fullbúinn og búið er að útbúa ca. 30 fm íbúð í hluta hans. Íbúðin samanstendur af stofu, herbergi, eldhúsi og baðherbergi. Geymsla er í enda skúrs inn af bílskúrshurð.

Geymsluskúr í lóð fylgir, 15 fm.

* Búið er að endurnýja þakjárn

* Búið er að endurnýja einhverja glugga

* Búið er að endurnýja suma ofna

* Búið er að endurnýja rofa og tengla

* Stofan er mjög stór og hægt er að bæta við einu herbergi í hluta hennar

* Fjögur svefnherbergi eru í húsinu

* Tvö salerni í húsi

* Góður 15 fm geymsluskúr er á lóð og fylgir með eigninni

* Afgirt timburverönd er á baklóð

* Vel gróin lóð er umhverfis húsið. Heiðin er i framhaldi af lóðinni

Frekari upplýsingar og skoðunarbókanir:

Unnur Svava Sverrisdóttir lgf á unnur@allt.is eða í síma 868-2555

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.700 af skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 56.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.

Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.

Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.