Heiðarbraut 9

805 Selfoss

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Heiðarbraut 9
Tegund
Sumarhús
Stærð
34,9999998092651 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1996
Fermetraverð
768.571 kr.

Lýsing

Heiðarbraut 9b, 805 Selfoss, Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignarlóð, fallegt útsýni. Lokað svæði (rafmagnshlið).

Fasteignaland kynnir: Sumarhús á 5.000 fm eignarlóð á skipulögðu sumarhúsasvæði við Heiðarbraut 9B. Húsið er skráð 28,8 fm að stærð auk þess er ca. 6,2 fm geymsla eða samtals 35 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Á lóðinni er einnig ca. 5 fm geymsla sem nýtt er sem gestahús. Húsið var byggt árið 1996 og geymslan árið 1998. Í þessu húsi er varmadæla loft í loft auk þess eru rafmagnsofnar. Rafmagnshitakútur er fyrir neysluvatn. Stutt í golfvöll og aðra þjónustu.

Húsið skiptist: Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Svefnherbergi með flísum á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi, handlaug, setubaðkari með sturtu. Eldhús með hvítri innréttingu og sambyggðri eldavél með fjórum hellum. Stofa er með parketi á gólfi. Rafmagnshitakútur er fyrir neysluvatn. Til staðar eru rafmagnsofnar en húsið er hitað með varmadælu loft í loft.

Geymsluskúr nr. 1: Skráður 6,2 fm.

Geymsluskúr nr. 2: Ca 5 fm og nýttur sem gestahús.

Búið er að gróðursetja talsvert af trjáplöntum af öllum tegundum. Stór verönd er við húsið.. Húsið er á steyptum stólpum.

Möguleiki er að fá búslóð með i kaupum á eigninni.

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 25.000 á ári..-

Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni og útivist og glæsilega sundlaug að Minni Borg sem er í ca. 2 km. fjarlægð.

Upplýsingar gefa:

Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is

Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is