Áshamar 6 - íbúð 202

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 87.600.000 kr.

Áshamar 6 - íbúð 202
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
114,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
762.402 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir nýjar eignir við Áshamar 2-10 í glæsilegum fjölbýlishúsum í Svansvottuðu ferli í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá stúdíóíbúðum til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl.

Bókið skoðun hjá: Alfreð B. Valencia Viðskiptafræðingur - aðstoðarmaður fasteignasala í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

Heimasíða verkefnisins:

Áshamar 6, íbúð 02-02 er 114.9 fm 4 herb.íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á mjög góðum stað í Hafnarfirði. Sérmerkt bílastæði í bílskýli.

Opinber skráning eignarinnar: Birt flatarmál er 114.9 fm og þar af 11,8 fm geymsla í sameign.

**Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit**

Bókið skoðun hjá sölumanni Eignamiðlunar.

Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Alfreð B. Valencia í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

Lilja Guðmundsdóttir í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Kári Sighvatsson í síma 899-8815 eða kari@eignamidlun.is

Rögnvaldur Örn Jónsson í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is

Oddný María Kristinsdóttir í síma 777-3711 eða oddny@eignamidlun.is

Nánari lýsing:

Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar meö öllum innréttingum og gólfefnum, flísar og vandað harðparket verður á gólfum.

Eldhúsinnrétting er frá Nobilia í Þýskalandi. Eldhúsinnrétting er fullbúin með blöndunartækjum og eldhústækjum þ.e. helluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Eldhústæki eru frá AEG.

Baðherbergisgólf og sturturými eru flísalögð. Baðherbergisveggir eru spartlaðir og málaðir með rakaþolinni málningu á þeim veggjum sem ekki eru flísalagðir. Baðinnrétting er með neðri skáp, hvítri handlaug og efri skápum með spegli á hurðum og ljósi. Salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð blöndunartæki og sturtustöng með utanáliggjandi blöndunartækjum. Lýsing er í lofti á baðherbergjum. Vandað harðparket er á alrýmum. Sjá nánar í skilalýsingu. Innréttingar í þessari íbúð eru: Ljós-Concrete Sand.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook