Langholtsvegur 28

104 Reykjavík

Ásett verð: 48.900.000 kr.

Langholtsvegur 28
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
55,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1945
Fermetraverð
876.344 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir mikið enurnýjaða 2 herbergja 55.8 fm íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík. Tilvalin fyrstu kaup eða sem útleigueining. Stór garður og bílastæði. Eignin er laus til afhendingar. Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS nánar tiltekið eign merkt 00-01, birt heildarstærð 55,8 fm. Þar af er íbúðin skráðir 50,3 fm og sérgeymsla merkt 00-02 er skráð 5,5 fm.

Eignin skiptist í forstofu, hol, svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi ásamt geymslu .

Helstu endurbætur

* 2020 Dren endurnýjað

* 2021 þakrennur og niðurföll endurnýjuð

* 2021 Inntakið á heita og kalda vatninu endurnýjað út í lóðamörk

* 2023 Skolplögn undir húsi

* 2026 Ofn ,ofnalagnir endurnýjaðar og ný lagnagrind m/varmaskiptir

* 2026 öryggi í rafmagnstöflu endurnýjuð

* 2026 Eldhúsið endurnýjað frá A-Ö ásamt tækjum

* 2025 Baðherbergið endurnýjað frá A-Ö

* 2026 Allt parket endurnýjað

* 2026 Endurnýjuð þvottahús innrétting

* 2026 Nýmáluð að innan

Nánari lýsing eignar

Forstofa með gólfhita og parketlögðu gólfi.

Þvottahús með innréttingu i kringum þvottavél og þurrkara

Hol með parketi á gólfi

Eldhúsið er endurnýjað frá A-Ö með nýrri fallegri innréttingu með efri og neðri skápum , innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, ofn með helluborði með vitu yfir, parket á gólfi.

Baðherbergið er endurnýjað frá A-Ö með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, walk-in sturta, innbyggður handklæðaofn, flísalagt gólf, fiber plötur a veggjum, gólfhiti.

Svefnherbergi með parketi á gólfi og nýju opnum fataskápum.

Geymsla upphituð með sérinngangi

Kominn er tími á gluggaskiptum á íbúðinni ásamt ytra birði, Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is