Njálsgata 85

101 Reykjavík

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Njálsgata 85
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
70,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1938
Fermetraverð
921.875 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn lgf. kynna til sölu vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð við Njálsgötu 85 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 70,4 fm samkvæmt FMR en þar af er 2,5 fm geymsla.

Eignin skiptist í: Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, svalir, búr/þvottahús og geymslu við skúr.

Nánari lýsing:

Forstofa er parketlögð með fataskápum og geymsluskáp.

Baðherbergi er flísalagt með salerni, baðkari með sturtu, spegli og innréttingu undir handlaug.

Eldhús er flísalagt með hvítri innréttingu á tveimur veggjum og timburborðplötu. Frístandandi eldavél með gashellum og háfur fyrir ofan.

Inn af eldhúsi er búr sem einnig er nýtt sem þvottahús.

Stofa/borðstofa er björt, parketlögð með innbyggðum bókahillum og útgengi á suðursvalir.

Hjónaherbergi er parketlagt með tvöföldum fataskápum upp í loft.

Barnaherbergi er parketlagt.

Köld geymsla í frístandandi skúr á baklóð.

Eign á frábærum stað sem vert er að skoða. Stutt í allt sem miðbær Reykjavíkur hefur upp á að bjóða eins og veitingastaði, söfn, menningu, verslanir og fleira.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali, s: 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.