Gnoðarvogur 22
104 Reykjavík
Ásett verð: 64.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 73,9 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1959
- Fermetraverð
- 878.214 kr.
Lýsing
Borgir fasteignasala kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Gnoðarvog 22, 104 Reykjavík.
Nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 202-2396
Eignin er skráð 73,9 fm, þar af 67,4 fm íbúð og 6,5 fm geymsla.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, bjarta stofu með útgengi á suðvestursvalir, rúmgott eldhús með sérsmíðaðri innréttingu og baðherbergi sem var endurnýjað árið 2024.
Í sameign er gott þvottahús með sértengingu fyrir vélar, þurrkherbergi og hjólageymsla. Geymsla í kjallara fylgir eigninni.
Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum, m.a. hefur það verið klætt á þremur hliðum, bílaplan malbikað og stigagangur málaður og teppalagður. Verið er að skipta um glugga á framhlið hússins.
Eignin er á eftirsóttum stað þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór, lgf – sími 690 5123, bjarklind@borgir.is
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf – sími 820 0788, johanna@borgir.is