Móstekkur 6

800 Selfoss

Ásett verð: 79.990.000 kr.

Móstekkur 6
Stærð
133,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
598.728 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Móstekkur 6 íbúð 202

Um er að ræða vandaða íbúð á 2. hæð rétt við Stekkjarskóla á Selfossi.

Húsið er staðsteypt og klætt að utan með litaðri álklæðningu, gluggar og hurðir eru úr áli og þak klætt með tvöföldum tjörudúk.

Að innan skiptast eignirnar í anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús/geymslu sem eru í rúmgóðu rými.

Nánari lýsing:

Fallegar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi, fataskápar eru í öllum herbergjum sem og forstofu. Loft eru klædd með hljóðdúk og eru innfeld ljós í loftum.

Í anddyri eru tvöfaldir fataskápar.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja en þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum og falleg innrétting.

Stórir og bjartir gluggar eru í íbúðunum sem gefa mikla birtu og gott útsýni. Úr stofu er útgengt á góa verönd.

Í eldhúsi er smekkleg innrétting með stórri eyju og góðu vinnuplássi.

Þvottahús / geymsla er með flísum á gólfi, góð innrétting er í þvottahúsi en í rýminu er hurð út á framlóð og baklóð.

Gólfhiti er í öllum íbúðum.

Parket er á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga

arborgir@arborgir.is