REYNIHVAMMUR 1A

700 Egilsstaðir

Ásett verð: 39.000.000 kr.

REYNIHVAMMUR 1A
Stærð
73,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1993
Fermetraverð
529.891 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu REYNIHVAMMUR 1A, 700 Egilsstaðir.

Ný standsett þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð í þríbýlishúsi í Fellabæ. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Eignin er íbúð á neðri hæð 73.6 m² að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.

Skipulag íbúðar : Alrými með stofu, eldhúsi, borðstofu og forstofu, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Alrými með stofu, eldhúsi, borðstofu og forstofu, forstofa með flísum á gólfi, flæðandi harðparket á stofu og eldhúsi.

Eldhús, borðstofa , Ikea innrétting, spanhelluborð, ofn og háfur, innbyggð uppþvottavél og ísskápur og frystir.

Herbergi I , hjónaherbergi, harðparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi II, harðparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi , flísar á gólfi, vaskinnrétting, salerni og sturtuhorn, handklæðaofn og gluggi, dúkur er á veggjum í sturtuhorni.

Þvottahús, flísar á gólfi, vinnuborð, pláss fyrir eina vél undir borði, hitaveitugrind undir borði.

Íbúðin var öll nýlega standsett (2025) öll gólfefni, innihurðar, innréttingar í eldhúsi og tæki ásamt innréttingum á baði og fataskápum, rofum og tenglum og ofnum. Einnig var sett hljóðeinangrun milli íbúða, bæði á sömu hæð og milli hæða.

ATH - Möguleiki er á að öll húsgögn fylgi eigninni eftir nánara samkomulagi.

REYNIHVAMMUR 1 er tveggja hæða hús, neðri hæð er steypt, efri hæð er úr timbri, klædd með steniplötum. Plastgluggar og timbur hurð, þak er mænisþak klætt bárujárni. Íbúðin er á neðri hæð, malarstígur liggur meðfram húsi að inngangi íbúðar, þar er timburverönd með skjólvegg. Möl er í bílaplani. Lóð er gróin, sameiginleg, íbúðin á sérnotaflöt á lóð.

Lóð er sameiginleg 1.030,0 m² leigulóð í eigu Múlapings. Samkvæmt lóðarleigusamning er lóðin leigð til erfðafestu til óákveðins tíma frá 1.6.1993, skjal nr. 426-F-001044/1993. Skyldur og réttindi vegna lóðar fara eftir hlutfallstölum í lóð og lögum um fjöleignahús. Bílastæði eru austan og norðan við húsið.

Nánari upplýsingar um eignina er að finna í söluyfirliti hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 221-5703. Reynihvammur 1A, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 73.6 m².

Brunabótamat: 23.150.000kr.

Fasteignamat: 35.600.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 38.600.000 kr.

Byggingarár: 1993.

Byggingarefni: Steypt+timbur.

Eignarhald:

01.0101- Séreign. Rými 01.0101 Íbúð, 73.6 Brúttó m².

Landeignanúmer: L172906. Íbúðarhúsalóð 1.030,0 m².