Fellsmúli 2 / 301
108 Reykjavík
Ásett verð: 64.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 93,7 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1963
- Fermetraverð
- 692.636 kr.
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali í síma 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Vel skipulögð 93,7 fermetra íbúð við Fellsmúla 2 í 108 Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með góðar suðursvalir út frá stofu. Eignin vel staðsett á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Skeifan, Kringlan, menntaskólar, skólar og leikskólar í göngufæri, auk almennrar afþreyingar og þjónustu s.s. heilsugæslu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing:
Forstofa : Rúmgóðir fataskápar. Parket á gólfi.
Eldhús : Fallegt eldhús með borðkrók. Góð innrétting með efri skápum öðru megin, Smeg blástursofn, Smeg gashelluborð, gufugleypir og pláss fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, upphengdir veggskápar í stíl við eldhúsinnréttingu. Útgengt út á sólríkar suðursvalir.
Hjónaherbergi : Komið er inn í herbergin af stuttum gangi, hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, nýlega teppalagt með teppi frá Parka.
Barnaherbergi : Fataskápar á gangi framan við herbergi, teppalagt.
Baðherbergi : Flísar á gólfi og upp á veggi. Baðkar með sturtu og baðinnrétting með rými fyrir þvottavél.
Geymsla : Eigninni tilheyrir 4,7 fm. sérgeymsla á jarðhæð hússins.
Sameign : Sameiginleg hjóla-/vagnageymsla er í húsinu. Sett hefur verið upp sameiginleg hleðslustöð á bílastæði við húsið.
Vel staðsett eign í göngufjarlægð frá leikskóla, grunnskóla og margvíslegri þjónustu. Fellsmúlinn er í göngufæri við Laugardalinn og stutt er niðrá Laugaveg.
Hægt á að vera finna teikningu af húsinu inná [link] sem er teikningavefur Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða í netfangið jason@betristofan.is