Álfheimar 6
301 Akranes
Ásett verð: 49.900.000 kr.

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 80 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2013
- Fermetraverð
- 623.750 kr.
Lýsing
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt og vel staðsett 80 m2 sumarhús á leigulandi við Álfheima í Hafnarskógi Akranesi. Beygt er niður til vinstri rétt áður en komið er að Borgarfjarðarbrúnni, merkt Hafnarskógur og keyrt ca. 300 m niður að sjónum, þar stendur sumarhúsið í götu sem heitir Álfheimar 6. Bústaðurinn stendur vel og er útsýni yfir Borgarfjörð og yfir í Borgarnes. Sumarhúsið er mjög vandað og stendur á steyptri plötu. Húsið er hitað með rafmagni og er gólfhiti í húsinu. Nýleg varmadæla sem hefur lækkað hitunarkostnað mikið. Símahlið inn á svæðið .
Sumarhúsið skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofu, borðstofu og eldhús. Sumarhúsið er skemmtilega skipulagt með fallegum viðarþiljum að innan og glæsilegu opnu eldhúsi með fallegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél , gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu , helluborð með viftu yfir. Fallegt baðherbergi með walk-in sturtu , vaskur með innréttingu yfir, upphengt salerni , handklæðaofn, og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á öllum gólfum og gólfhitakerfi. Kamína er í stofunni. Við húsið er stór pallur, og búið er að byggja 15 m2 útihús og litla eldiviðargeymslu. Í anddyrinu er lítil inntaksgeymsla með glugga. Frábært útsýni er úr húsinu yfir Borgarfjörð. Lóðarleiga á ári er um 125.000 kr.
Í heild sinni er þetta fallegt og mjög vandað sumarhús í frábæru umhverfi rétt við Borgarnes, allar uppl. um húsið veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is