Vetrarbraut 11

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Vetrarbraut 11
Tegund
Parhús
Stærð
131,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
682.094 kr.

Lýsing

​​​​​​Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá Lögheimili Eignamiðlun ehf, kynna til sölu glæsilega vel skipulagða þriggja herbergja parhús með bílskúr vel staðsett í Þorlákshöfn.

Vetrarbraut 11 Þorlákshöfn skráð sem hér segir hjá FMR: F2523852, nánar tiltekið eign merkt 010102, bílskúr merkt 010104 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 131,8 fm2. Stutt er í alla almenna þjónustu, verslun, sundlaug, leik- grunnskóla, almenningssamgöngur og útivist.

​​​​​​Nánari lýsing:

Forstofa: Björt með beige/ljósbrúnir fataskáp sem nær til lofts, flísar á gólfi.

Eldhús: Vönduð innrétting með góðum tækjum, borðplata með marmaraáferð, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Gluggi er yfir vaski, bakstursofn og örbylgjuofn í vinnuhæð frá AEG, Stór eyja með góðu skúffuplássi, spanhelluborði með innbyggðri viftu, parket á gólfi.

Stofa/borðstofa : Bjart alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Stórir gluggar og parket á gólfi. Úr stofu er útgengi um rennihurð út á c.a 80 fm pall til suðurvestur.

Svefnherbergi l: Rúmgott með góðum fataskáp sem nær til lofts, parket á gólfi.

Svefnherbergi ll: Bjart og rúmgott með góðum fataskápum sem ná til lofts og parket á gólfi.

Þvottaherbergi: Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og innbyggðum vaski. Hér er gert ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.

Baðherbergi: Snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta með glervegg, handklæðaofn, vegghengt salerni falleg innrétting undir handlaug og speglaskápur. Útgengi út á sólpallinn.

Garður: Pallur sem er c.a 80 fm skjólsæll með heitum potti, falleg lýsing og auka rafmagnstenglar, snyrtilegur garðflötur.

Bílskúr: Stór bílskúr sem er 39,3 fm, Hugsað var fyrir að setja auka herbergi með glugga, rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, sem er stýrt með síma, útgengi út í garð, gönguhurð út á sólpall, og gólfefni epoxy.

Lóðin: Framan við húsið er snyrtilegt hellulagt bílaplan, Hitalagnir eru í innkeyrslu með snjóbræðslu, lokuð ruslatunnuskýli fyrir þrjár tunnur.

Annað: Fallegt parhús í hjarta Þorlákshafnar vandað til verks. Möguleiki að setja upp herbergi í bílskúr, fallegar og vandaðar innréttingar parket, hurðar eru frá Birgisson, flísar eru frá Flísabúðinni , Allar innréttingar er frá Brúarás og blöndunartæki eru frá Grohe , borðplötur frá Fanntófell. Ljósa og hitastýring. Bílskúr er með epoxy.

Húsið er á staðsteyptum sökkli með steyptri einangraðri plötu með gólfhita. Hitalagnir eru í steyptri gólfplötu og tengdar við tengikistur og hitastýringu.

Útveggir hússins eru úr timburgrind einangraðir að innan og klætt að utan með svartri ál-smábáru. Gluggar og hurðar hússins eru svartir að utan ál/tré og tvöfalt gler).

Þetta er mjög falleg eign sem vert er að skoða.

Allar ástands upplýsingar í söluyfirliti þessu er að sögn seljanda.

Nánari upplýsingar veita

Díana Arnfjörð Löggiltur fasteignasali, í síma 895 9989, diana@logheimili.is.

​​​​​​Hulda Ósk Löggiltur fasteignasali, sími 771 2528 hulda@logheimili.is.