Mýrartún 22

600 Akureyri

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Mýrartún 22
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
97,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
717.659 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010 .

Mýratún 22 - neðri hæð. Björt og vel skipulögð 3–4 herbergja 97,4 fm íbúð með sérinngangi og stórri steyptri suðurverönd í Naustahverfi á Akureyri.

** Eignin verður sýnd mánudaginn 16. nóvember kl 16:15-16:45 - Smelltu hér og skráðu þig á sölusýningu **

** Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður **

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu sem getur nýst sem þriðja herbergið.

Forstofa er með góðum fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús og stofa eru með flísum á gólfi. Í eldhúsi er góð eikarinnrétting með eyju, flísum á milli skápa og góðu vinnuplássi. Pláss er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu og bakaraofn er í vinnuhæð. Úr alrými er gengið út á stóra steypta verönd sem snýr til suðurs.

Baðherbergi er með baðkari með sturtutækjum, upphengdu salerni, handklæðaofni og góðri innréttingu. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

Svefnherbergi eru tvö, bæði með góðum fataskápum og flísum á gólfi.

Þvottahús er með lítilli innréttingu og flísum á gólfi. Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla sem getur nýst sem þriðja herbergi .

Sameiginleg geymsla fyrir tvær íbúðir er á jarðhæð.

- Íbúðin er í barnvænu hverfi, stutt er í leik- og grunnskóla og útivistarsvæðin við Hamra og Kjarnaskóg eru í göngufæri.

- Stór suðurverönd.

- Geymsluskúr er á pallinum.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.