Drekagil 28

603 Akureyri

Ásett verð: 42.900.000 kr.

Drekagil 28
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
64,3 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1993
Fermetraverð
667.185 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala ehf. (Einar Pálsson lgf. einar@fastborg.is; 857-8392) kynna tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli með fallegu útsýni og lyftu að Drekagili 28, (íbúð 301) 603 Akureyri. Sameiginlegt þvottarými er á sömu hæð og íbúðin og sér geymsla ásamt sameiginlegri vagna/hjólageymslu á jarðhæð hússins. Svalir eru til suður.

Húsið er byggt árið 1993 með alls 22 íbúðum á 8 hæðum samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu. Íbúðin (01 0301) er skráð 64,3 m 2 að stærð samkvæmt opinberum skráningum HMS ásamt sér geymslu á jarðhæð hússins.

Lýsing eignar:

Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi með rennihurðum.

Eldhús er með flísum á gólfi. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum og flísum á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.

Stofan er rúmgóð með fallegu útsýni og útgengi á svalir til suðurs .

Hjónaherbergi er með parket á gólfi og föstum fataskáp.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjaþiljum inn í sturtu ásamt sturtugleri, klósetti og ágætis innréttingu. Ofn er inn á baðherbrgi.

Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni.

Sér geymsla er á jarðhæð hússins ásamt sameiginlegri vagn- og hjólageymslu.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is

-Eignin er í einkasölu

-Ljósleiðari er tengdur inn í íbúðina

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.