Geirakot

356 Snæfellsbær

Ásett verð: 135.000.000 kr.

Geirakot
Tegund
Lóð
Stærð
528 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
255.682 kr.

Lýsing

Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Geirakot, Snæfellsbæ. Um er að ræða jörð á einstaklega fallegum útsýnisstað.

Ljósleiðari komin inn í íbúðarhús og tengdur. 3ja fasa rafmagn. Heimreið með bundnu slitlagi. Einungis 6 km eru til Ólafsvíkur þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.

Skv. skráningu Fasteignaskrár eru eftirfarandi hús á jörðinni:

Íbúðarhús byggt 1963, mælist 36 fm.

Véla- og verkfærageymsla byggð 1966, mælist 95 fm.

Fjárhús byggð á árunum 1960 - 1977, mælast 252 fm

Hlaða byggð 1971, mælist 70 fm.

Hlaða byggð 1961, mælist 75 fm.

Nánari lýsing:

Íbúðarhúsið hefur verið endurnýjað að þó nokkru leiti og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi og eitt svefnherbergi.

Véla- og verkfærageymslan er rúmgóð með tveimur nýlegum innkeyrsluhurðum og gönguhurð, óeinangruð.

Fjárhúsin eru með áburðarkjallara sem er vélgengur. Hluta fjárhúsanna hefur verið breytt í hesthús með steyptum stíum og steyptum fóðurgangi.

Jörðin er talin vera nærri 620 hektarar og þar af er ræktað land nærri 18,5 hektarar.

Virkjunarmöguleiki er í Stafabergsá sem er í 50% eigu Geirakots og 50% eign Brimilsvalla.

Gott kalt vatn úr lind inni á landi jarðarinnar.

Jörðin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í meira en 100 ár.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.