Þelamörk 47C, miðjuraðhús

810 Hveragerði

Ásett verð: 87.500.000 kr.

Þelamörk 47C, miðjuraðhús
Tegund
Raðhús
Stærð
129 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
678.295 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Þelamörk 47c, Hveragerði. Fallegt, nýlegt, 4ra herbergja miðjuraðhús í botnlanga í grónu hverfi, miðsvæðis í Hveragerði.

Stutt er í alla almenna þjónustu og útivist.

HÚSIÐ ER LAUST VIÐ KAUPSAMNING !

* Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 *

Eignin skiptist svo:

* Anddyri.

* 3 rúmgóð svefnherbergi. Góðir fataskápar eru í barnaherbergjum.

** Fataherbergi og baðherbergi eru inn af hjónaherbergi.

* Fallega stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými þaðan sem utangengt er á verönd.

** Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta borðstofunni í 4. svefnherbergið.

** Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju, helluborði, bakaraofn, innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél.

* 2 baðherbergi eru í húsinu:

* Aðalbaðherbergið er með fallegri hvítri innréttingu, flísum á gólfi og að hluta til á veggjum, sturtu úr glerþili.

* Minna baðherbergið er inn af hjónaherbergi. Þar er hvít, lítil innrétting og sturta úr glerþili. Flísar á gólfi og hluta veggja.

* Þvottahús og geymsla með flísum á gólfi.

* Geymsluloft er fyrir ofan anddyri.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er eins, fallegt harðparket. Allar innihurðar eru hvítar, yfirfelldar.

Innbyggð lýsing er í anddyri, gangi og alrými. Gólfhiti er í allri eigninni. Gólfhitastýringar fylgja ekki.

* Lóð er frágengin að framan með hellum og timburverönd.

* Bílaplan er malbikað. Í rafmagnstöflu er gert ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum rafbíla. Lagnaleiðir er frá að bílastæði með tengimöguleika, ekki er lagt í.

* Að aftan er lóð frágengin með timburverönd og skjólveggjum milli húsanna.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

Sími 483 3424