Brekkustígur 42

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 94.900.000 kr.

Brekkustígur 42
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
301,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1961
Fermetraverð
314.968 kr.

Lýsing

Vorum að fá í sölu Brekkustíg 42, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-3094 birt stærð 301.3 fm. Eignin er á tveimur hæðum. Á jarðhæð er mjög stórt og gott verkstæði með þremur innkeyrsluhurðum með góðri lofthæð. Efri hæð sem er skráð starfsmanna aðstaða hefur verið innréttuð íbúð með þremur svefnherbergjum eldhúsi og stofu sem er með fallgt útsýni.

Eignin bíður upp á marga möguleika svo sem til útleigu og einnig ef vantar gott skrifstofurými sem fylgir iðnaði.

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Skipting eignar: Neðri hæð: Stór salur með þremur innkeyrsluhurðum. Snyrting og stigagangur.

Efri hæð: Stigagangur, stofa, eldhús, þrjú stór svefnherbergi, hol, þvottahús og baðherbergi.

Neðri hæð samanstendur af 201.5 fm. Þrjár innkeyrsluhurðar, opið rými og búið að stúka af sprautuklefa ásamt geyslulofti. Afstúkað rými sem er skráð verkstjórarými sem í dag er notað til að blanda lakk. Gott bílastæði er við tvær hliðar eignarinnar.

Efrihæð er innangeng frá stigagangi sem getur líka verið sérinngangur frá verkstæði. Gengið upp stiga, komið á stigapall og inn í fullinnréttaða íbúð. Íbúðin er öll parketlögð.

Komið er inn í bjarta stofu og borðstofu með fallegu sjávarútsýni.

Eldhúsið er opið inn að stofu með tengi fyrir uppþvottavél og háf. I

nn af borðstofu er stórt hjónaherbergi.

Gangur, parketlagður

Baðherbergi með góðum sturtuklefa og handklæðaofni.

Hol: Fyrir framan svefnherbergin er rúmgott hol sem nýtist sem skrifstofuaðstað og einnig eru góðir fataskápar þar,

Tvö barnaherbergi með góðum gluggum.

Þvottahús inn af holi með góðri innréttingu.

Skiptist í eldhús, stofu, borðstofu, flott útsýni er frá stofu yfir á Faxaflóa. Þvottahús, þrjú svefnherbergi ásamt baðherbergi.