Bjarkarlundur 11

641 Húsavík

Ásett verð: 28.800.000 kr.

Bjarkarlundur 11
Tegund
Sumarhús
Stærð
51,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1996
Fermetraverð
559.223 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Bjarkarlundur 11, (Víðilundur), Aðaldalshrauni. Góður fjárfestingarkostur.

Sjá staðsetningu í kortasjá.

Vandað og vel umgengið 51,5 fm. sumarhús úr landi Núpa við flugvöllinn í Aðaldalshrauni. Húsið er byggt 1996 og er á skjólgóðum stað þaðan sem stutt er í allar helstu náttúruperlur Norð-austurlands.

Eignin skiptist í; alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og útigeymslu sem gengið er í af palli hússins.

Svefnloft er yfir helmingi hússins.

Lýsing eignar:

Anddyri, dúkur á gólfi og fatahengi og geymsluskápur.

Eldhús, mjög góð nýleg innrétting, helluborð og ofn ásamt lítilli uppþvottavél, sambyggt. Gott vinnupláss.

Baðherbergi er nýlega endurnýjað. Sturta, dúkur á gólfi og plötur á veggjum frá Þ. Þorgrímssyni, gluggi með opnanlegu fagi.

Svefnherbergin eru tvö í húsinu og er þau ágætlega rúmgóð. Parket á gólfum.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými. Parket á gólfi. Gengið út á stóra og skjólgóða timburverönd.

Útigeymsla, gengið í hana af verönd, einangruð og með rafmagni.

Annað:

- Húsið er rafmagnskynnt.

- Rafmagnstenglar endurnýjaðir að mestu fyrir u.þ.b. 4 árum.

- Neysluvatnslagnir endurnýjaðar að mestu þegar bað og eldhús var endurnýjað fyrir u.þ.b. 4 árum.

- Húsið er í almennu góðu viðhaldi.

- Þak málað 2025

- Sannkallaður sælurætur.

- Frábær staðsetning.

- Neystluvatnslagnir eru í jörðu.

Sumarhúsið er eitt af 6 húsum sem eru til sölu núna á sama svæði og tilvalið í ferðaþjónustu.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Arnar s;898-7011 /arnar@eignaver.is

Begga s;845-0671 /begga@eignaver.is

Tryggvi s;862-7919 /tryggvi@eignaver.is