Selásbraut 98

110 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Selásbraut 98
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
96,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
934.511 kr.

Lýsing

Erling Proppé lgf. & REMAX kynna: Nýja og glæsilega íbúð í lyftuhúsi að Selásbraut 98 í Árbæ, Reykjavík.

Íbúðin skilast fullbúin, með fallegum gólfefnum, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og með svalalokun. Gólfhiti er í íbúðinni ásamt loftskiptikerfi. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarperluna við Heiðmörk og Rauðavatn. Einnig er mjög stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og matvörubúð.

Íbúð 209 er glæsileg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með sérmerktu stæði á lóð. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 96.2, fm, þar af er geymsla í kjallara 10,2 fm. Stórar 28 fm yfirbyggðar svalir sem bjóða upp á mikla möguleika. Möguleiki er á að bæta við 3ja herberginu.

Nánari upplýsingar veitir:

Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is

Helstu atriði við frágang innandyra:

Innréttingar frá Voke III

Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með ljósu yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.

Eldhústæki frá AEG, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur.

Gólf baðherbergja eru flísalögð með 60 x 60 cm flísum frá Agli Árnasyni.

Hvítar innihurðir eru frá Agli Árnasyni.

Hús er klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Málmtækni.

Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler eða sambærilegt skv. byggingarreglugerð.

Blöndunartæki eru frá Grohe.

Loftskiptikerfi.

Nánari lýsing:

Forstofa: Stór fataskápur sem nær upp í loft.

Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn.

Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir.

Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft.

Herbergi II: Rúmgott með fataskápum upp í loft. - Ath. myndir af gestaherbergi eru unnar með gervigreind til að sýna möguleika, hlutföll rýmis geta tekið breytingum.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi og innrétting undir og við handlaug. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Er í sameign í kjallara 10,2 fm.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

Yfirbyggt hjólaskýli er fyrir utan húsið.

Nánari upplýsingar veitir:

Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.