Safamýri 33

108 Reykjavík

Ásett verð: 65.500.000 kr.

Safamýri 33
Stærð
84,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1968
Fermetraverð
772.406 kr.

Lýsing

TÆKIFÆRI - VERÐLÆKKUN - LAUS STRAX

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu

Fallega, bjarta, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 84,4 m2 íbúð á neðstu hæð í þríbýlishúsi með sér inngangi við Safamýri 33, 108 Reykjavík.

Húsið stendur innst í botnlanga.

- Íbúðin er skráð skv. HMS 84,8 fm þar af 5 fm sér geymsla

- Kjallarahæð, lítið niðurgrafin

- Sér inngangur. Má hafa gæludýr

- 3ja herbergja - tvö rúmgóð svefnherbergi

- 2020 Endurnýjaður gluggi í stofu og opnanlegur á baðiGluggum og glerjum

- 2019 Eldhús endurnýjað

- 2019 Baðherbergi endurnýjað

- 2016 Skólplagnir voru fóðraðar út í götu

- Verönd: Séreignarreitur undir svölum efri hæðar

Eignin skiptist í: Forstofu, hol, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð með fatahengi og skóskáp.

Hol: Af forstofu er flísalagt rúmgott hol. Þaðan er gengið inn allar aðrar vistarverur eignarinnar.

Eldhús: Flísalagt með L-laga eikar/hvítri, dökkbæsaðri innréttingu með skápum/skúffum, ofn í hæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Svefnherbergi: Parketlagt, rúmgott með skáp. Snýr út í garðinn.

Svefnherbergi: Parketllagt,óvenju rúmgott með skáp. Útgengi er á hellulagða verönd.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Vaskinnrétting, "walk in" sturta og salerni. Gluggi er á baði.

Þvottahús: Er sömu hæðar í sameign.

Geymsla: Í sameign 5 fm. Sömu hæðar, með hillum.

Lóð: Sameiginleg stór 998 fm lóð sem snýr með garðinn til suðvesturs.

Virkilega falleg eign innst í botnlanga, á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í öll skólastig; leik-grunn og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu í hverfinu og Kringlan rétt hjá.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is