Melasíða 5j

603 Akureyri

Ásett verð: 42.900.000 kr.

Melasíða 5j
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
61,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1987
Fermetraverð
693.053 kr.

Lýsing

Melasíða 5j - 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í Síðuhverfi á Akureyri - samtals 61,9 m² að stærð.

Sér inngangur er í íbúðina af sameignlegum stigapalli.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson - siggithrastar@kaupa.is - 888-6661

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi auk sérgeymslu á jarðhæð.

Forstofan er innaf sérinngangi af opnum stigapalli og þar er fatahengi.

Stofan er með plastparketi á gólfi og úr stofu er útgangur á rúmgóðar svalir til suð-vesturs - nýlegar er búið að endurnýja handrið.

Eldhúsið er með snyrtilegri viðarinnréttingu og plastparketi á gólfi. Opið er á milli stofu og eldhúss.

Svefnherbergið er með góðum fataskápum og plastparketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt, með nýlegum skáp undir vaska, baðkar með sturtutækjum og hengi, og á baðherberginu er tengi fyrir þvottavél.

Sérgeymsla er á jarðhæð.

Annað

- Stutt er í skóla og leikskóla.

- Gott útsýni

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.