Sólheimar 23

104 Reykjavík

Ásett verð: 81.500.000 kr.

Sólheimar 23
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
107,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1961
Fermetraverð
756.030 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali kynna til sölu rúmgóða og bjarta 4ra herbergja íbúð á 6. hæð með stórbrotnu útsýni í þrjár áttir. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymslu innan íbúðar ásamt yfirbyggðar svalir. Þar að auki er lítil geymsla í kjallara.

***BÓKIÐ SKOÐUN***

Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 107,8 fm.

Nánari lýsing:

Forstofa: Rrúmgóð með fataskáp. Flísar á gólfi.

Stofa : Björt og rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu og glæsilegu útsýni. Útgengi á góðar yfirbyggðar suður svalir. Parket á gólfi.

Borðstofa: Rúmgóð með stórum glugga og flottu útsýni. Búið að breyta í þriðja svefnherbergið. Parket á gólfi.

Eldhús: Með borðkrók, ljósri innréttingu, ofn í vinnuhæð. Flísar á gólfi.

Baðherbergi: Með sturtuklefa og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.

Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum fataskáp og gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II: Með fataskáp. Parket á gólfi.

Svefnherbergi III: Rúmgott, var áður borðstofa en léttur veggur hefur verið settur upp til að útbúa herbergi, auðvelt að afturkalla. Parket á gólfi.

Þvottahús/geymsla: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gott geymslupláss. Auk þess er gott þvottahús og þurrkherbergi í kjallara sem og lítil geymsla.

Sameign hússins er afar snyrtileg og er húsvörður starfandi í húsinu. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi sem og hjóla- og vagnageymsla. Næg bílastæði eru á lóðinni og er búið að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.

Húsið hefur fengið reglulegt og gott viðhald í gegnum árin.

Helstu endurbætur sem hefur verið farið í síðustu ár:

2017 - Gluggar endurnýjaðir.

2022 - Skólp og dren lagfært.

2024 - Ný lyfta.

2024 - Bílastæði endurbætt.

2025 - Anddyri lagfært.

Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla, bókasafn, útivistarsvæði í Laugardalnum o.fl

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is