Langalína 10
210 Garðabær
Ásett verð: 117.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 129,5 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2007
- Fermetraverð
- 910.425 kr.
Lýsing
Nýtt á skrá! Langalína 10 í Garðabæ - Glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð við sjóinn með sérstæði í bílakjallara.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 129,5 fermetra 3ja herbergja íbúð með glæsilegu útsýni út á sundin, stórri stofu, rúmgóðum svölum og bílastæði í bílakjallara við Löngulínu 10 í Garðabæ. Vandað og fallegt lyftuhús sem er byggt árið 2007. Íbúðin er einstaklega vel staðsett í húsinu með glæsilegu útsýni er út á sundin. Þvottaherbergi er inn af íbúð og stór 10,7 fermetra geymsla í kjallara.
Um er að ræða virkilega glæsilega íbúð á eftirsóttum stað í Sjálandi í Garðabæ. Lóðin er virkilega falleg og vel viðhaldin með hellulögðum stéttum með snjóbræðslu, tyrfðum flötum og malbikuðum gestastæðum fyrir framan hús.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlæð. Jónshús, félagsmiðstöð fyrir eldri borgara í göngufjarlægð.
Nánari lýsing:
Forstofa/gangur: Með parketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er stór með parketi á gólfi og góðum gluggum til austurs, norðurs og vesturs með glæsilegu útsýni út á sundin. Stofa er opin við eldhús og rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi frá stofu á stórar svalir til vesturs.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri eikar eldhúsinnréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Stál bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og eyjuháfur fyrir ofan. Gluggar til vesturs og norðurs.
Svalir: Eru stórar með flísum á svalagólfi og snúa til vesturs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerhurð og baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Rúmgott með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með parketi á gólfi, skápar og gluggi til vesturs.
Sérstæði í bílakjallara: Er breitt og er merkt 01B22 (207). Snyrtilegur og lokaður bílakjallari.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er 10,7 fermetrar.
Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum á gólfi. Auk þess er sameiginleg geymsla fyrir húsin í kjallara.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is