Erluás 31

221 Hafnarfjörður

Erluás 31
Tegund
Einbýlishús
Stærð
284,199999237061 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
2003

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj.s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Erluás 31

Um er að ræða 287 fermetra einbýlishús með innbyggðu bílskýli á 784,1 m² glæsilegri útsýnislóð á skjólsælum og eftirsóttum stað í Áslandinu. Húsið er teiknað af GlámuKím og Sigríði Sigurðardóttur og er byggt árið 2003 en viðbyggingin er byggð árið 2018.

Lóðin er fullfrágengin og viðhaldslétt að hluta til óhreif náttúra. Stór og glæsileg innkeyrsla fyrir 3-4 bíla og stéttar fyrir framan húsið eru með hitalögnum. Skjólsælar verandir fyrir frama og aftan húsið. Stutt er í skóla, tvo leikskóla og íþróttasvæði Hauka.

Utanhús :

Húsið er steinað að utan að hluta og með lerki klæðningu. Gluggar og hurðir eru frá Ideal Combi. Á þaki er bárujárn og þakpappi á viðbyggingu.

Skipulag eignar:

Neðri hæð

Komið er inn í stóra forstofu / hol. Innaf holi er skrifstofa og stofa. Tveir stigar eru úr holi/inngangi, annar gengur upp í svefnálmu og hinn upp í eldhús og borðstofu. Einnig er gengið úr holi inn í geymslu og fjölnotaherbergi/ þvottahús / bílskúr.

Inngangur : Slípuð steypa – Fatahengi með skúffum frá Brompton/Boffi.

Stofa – Skrifstofa: Niðurlímt ólíuborið eikarparket – innfelld lýsing, brautir og arinn.

Snyrting : Vola blöndunartæki.

Geymsla : Náttúrusteinn.

Fjölnotaherbergi/Þvottaherbergi: Góðir skápar og þvottahúsinnrétting - Stór hurð frá Schuco. Náttúrusteinn á gólfi.

Efri hæð:

Borðstofa og eldhús

Innrétting : Stór eyja með háfi ásamt innréttingu og hillum frá Boffi. Innbyggð kaffivél, uppþvottavél, hitaskúffa og tveir ísskápar. Tæki frá Guggeno og Mile. Stór setgluggi með fallegu útsýni ásamt rennihurð frá Schuco. Olíuborin eik, lýsing frá FLOS/Lumex.

Gólfefni : Slípuð steypa.

Skjólgóðar suður svalir gengið út úr eldhúsi.

Sjónvarpsherbergi : Innaf eldhúsi er sjónvarpsherbergi, gólfefni er ólíuborin eik, lýisng frá FLOS/Lumex

Svefnálma skiptist í 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi.

Hjónaherbergi : Brompton hengi/skúffur frá Boffi – niðurlímt eikarparket á gólfum.

Herbergi 1, 2 og 3

Fataskápar í 2 herbergjum - niðurlímt eikarparket á gólfum - innfeld lýsing.

Baðherbergi 1

Vola blöndunartæki, 60x60 flísar á gólfi og marmari inn í sturtu.

Innrétting með marmaravaski og borðplötu. Innrétting og spegill frá Boffi.

Baðherbergi 2

Vola blöndunartæki, 60x60 flísar á gólfi og marmari inn í sturtu.

Innrétting með marmaravaski og borðplötu. Innrétting og spegill frá Boffi.

Allar innihurðir eru hvítar.

Húsið er hitað upp með gólfhita.

Skv. seljanda er húsið í góðu ástandi að utanverðu.

Lóðin, sem er 784,1 fermetra lóð, er fullfrágengin og viðhaldslétt, að hluta til óhreyfð náttúra. Stór innkeyrsla með hellum og hitalögnum undir, steyptum veggjum, möl í beðum o.fl. Góð útigeymsla er við bílskýli og önnur norðanmegin ca. 4 fm og einnig er góð sorpgeymsla sem er fyrir 3-4 tunnur.

Hér er hlekkir á umfjöllun um húsið:

GlámaKím

Viðbygging / addition | Gláma·Kím

Nanne Springer - ljósmyndari

Nanne Springer - Iceland | Hafnarfjörður

Innréttingar:

Boffi Official Website - Made in Italy Furniture Brand

Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510 , glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.