Baugalda 11b
850 Hella
Ásett verð: 69.800.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 128,699999237061 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2018
- Fermetraverð
- 542.347 kr.
Lýsing
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
RAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ BAUGÖLDU 11B Á HELLU.
Um er að ræða íbúð í nýju fjögurra íbúða raðhúsi. Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utan með lituðu járni. Litað járn er á þaki. Eignin telur: Anddyri og hol með vinylparketi á gólfi. Sambyggða stofu og eldhús með vinylparketi á gólfi. Hurð er úr stofunni út í garð. Í eldhúsinu er vönduð innrétting með; ísskáp með frysti, uppþvottavél, spanhelluborði, ofni og örbyglgjuofni. Þrjú svefnherbergi með vinylparketi á gólfi, skápur er í hjónaherberginu. Baðherbergi með vinylparketi á gólfi, innréttingu og stórum sturtuklefa með flísum á gólfi. Þvottahús með vinylparketi á gólfi og innréttingu. Úr þvottahúsinu er innangegnt í bílskúrinn sem er fullfrágenginn. Inni í uppgefnum fm fjölda íbúðar er skráð geymsla ca 10 fm sem á að vera inn af bílskúr. Hún var ekki aðskilin frá skúrnum og er hann því 10 fm stærri en uppgefinn fm fjöldi Á honum eru innkeyrsludyr og tvær gönguhuðir. Gólfhiti er í öllum gólfum. Við húsið er stór verönd úr timbri með skjólveggum og heitum potti. Bifreiðastæði er malarborið.
Kaupendur greiða engin umsýlsugjöld.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.