Björkurstekkur 67

800 Selfoss

Ásett verð: 128.500.000 kr.

Björkurstekkur 67
Tegund
Einbýlishús
Stærð
224,999998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
571.111 kr.

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Björkurstekkur 67. Nýtt og vandað 5 herbergja einbýlishús með stórum bílskúr alls 225 fm.

Jaðarlóð og innst í botngötu.

Frábært hús fyrir stóra fjölskyldu. Grunnskóli og leikskóli í þægilegu göngufæri.

Húsið er timburhús byggt 2022. Klætt með liggjandi báruáli og standandi lerkiklæðningu. Álþakkantur og ál/tré gluggar.

Íbúðarhluti hússins er 169,9 fm og bílskúr 55,1 fm.

Innra skipulag. Flísalögð forstofa með fataskáp. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Hurð úr stofu á sólpall til suðurs.

Stór eldhúsinnrétting með granít borðplötu. 5 hellu gaseldavél í eyju og borðháfur með rafmagni. Vönduð tæki og vínskápur.

Sjónvarpshol er framan við herbergin. Þrjú góð svefnherbergi , baðherbergi flísalagt með sturtu og innréttingu. Stórt hjónaherbergi/hjónasvíta með fataherbergi og stóru flísalögðu baðherbergi með baðkari og sturtu. Hurð út á sólpall.

Í alrými og herbergjum er vínilparket.

Flísalagt þvottahús með stórri innréttingu og hurð út í garð. Innangengt í bílskúr.

Bílskúr er með breiðri aksturshurð og gönguhurð.

Allt mjög smekklegt og vandað.

Hiti er í gólfum með þráðlausum stýringum. Forhitari fyrir gólfhita og neysluvatn. Innfelld ledlýsing í lofti. Dimmerar á ljósum og hægt að stýra þeim með appi í síma.

Bílahleðslustöð fylgir með eigninni. Öll tæki og innréttingar á baðherbergjum eru frá Tengi.

Þökulögð lóð og stór sólpallur með skjólveggjum, um 80 fm. Ídráttarrör fyrir heitan pott á palli. Möl í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090

Bókið skoðun hjá fasteignasala.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.