Strandvegur 10
870 Vík
Ásett verð: 69.800.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 107,4 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2018
- Fermetraverð
- 649.907 kr.
Lýsing
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
RAÐHÚS VIÐ STRANDVEG 10 Í VÍK.
Um er að ræða miðjuíbúð í þriggja íbúða raðhúsi, sem byggt er úr timbri árið 2018 og er klætt að utan með liggjandi timburklæðningu. Eignin telur: Anddyri með flísum á gólfi og skáp. Gang með parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum. Yfir einu herberginu er svefnloft með parketi á gólfi. Alrými með parketi á gólfi, uppteknu lofti, góðri eldhúsinnréttingu með eyju, ofni, örbylgjuofni, kæliskáp og frystiskáp. Hurð er úr rýminu út í garðinn. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu. Salerni með flísum á veggjum og gólfi. Þvottahús og geymslu með flísum á gólfum. Við húsið er verönd úr timbri, hellulögð gangstétt og bifreiðastæði og gróinn garður.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877 og netfang: agust@fannberg.is
Guðmundur Einarsson, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.