Gullsmári 1

201 Kópavogur

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Gullsmári 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
80,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1995
Fermetraverð
872.659 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir: Góða 75,2 fm þriggja herbergja íbúð á annari hæð auk 4,9 fm geymslu við Gullsmára 1, 201 Kópavogi. eignin skiptist í forstofu, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi, barnaherbergi, stofu, borðstofu og geymslu.

Nýlegt parket.

Nýleg eldhúsinnrétting.

Nýlega skipt um allt á baðherbergi.

Nýlega máluð íbúð.

Eitt bílastæði á lóð merkt íbúð.

Íbúðin er skráð 75,2 fm samkvæmt HMS en að auki fylgir geymsla 4,9 fm samkvæmt eignaskiptasamning.

Nánari lýsing eignar.

Komið er inn í forstofu með fataskáp. Barnaherbergi með fataskáp. Eldhús með nýlegri hvítri HTH innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, helluborði, viftu, bakaraofni í vinnuhæð, tækjaskáp og plássi fyrir ísskáp. Stofa og borðstofa eru í opnu rými með útgengi út á góðar svalir . Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, innréttingu með vask, handklæðaofni, sturtuklefa og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 4,9 fm sér geymsla er á jarðhæð.

Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is